Willum Þór lýkur keppni í Vesturbæ 22. september 2004 00:01
Willum Þór var að klára sitt þriðja tímabil með KR í sumar. Fyrstu tvö árin skilaði hann Íslandsmeistaratitli í Vesturbæinn en í sumar gekk allt á afturfótunum hjá liðinu. KR-liðið komst aldrei í gang í sumar. Missti fljótt af lestinni í deildinni, datt út úr bikarnum í átta liða úrslitum gegn FH og framganga liðsins í Evrópukeppninni var ekkert til að hrópa húrra fyrir en KR féll á klaufalegan hátt úr leik gegn írska félaginu Shelbourne. Þessi árangur er langt frá væntinum KR-inga, sem ætluðu sér Íslandsmeistaratitilinn sem og að komast lengra en áður í Evrópukeppninni. Því komu fréttirnar í gær ekki mikið á óvart. Endurskoðunarákvæði var í samningi Willums og KR þar sem báðir aðilar höfðu útgönguleið og þetta ákvæði nýtti stjórn KR sér. "Það er ekkert launungarmál að við erum í þessu til að vinna en það gekk ekki eftir að þessu sinni," sagði Jónas Kristinsson, formaður KR-Sports, í samtali við Fréttablaðið í gær. "Við í KR erum mjög kröfuharðir og kannski erum við stundum of kröfuharðir. Ég veit það ekki. Það var engu að síður ákvörðun stjórnar að það væri best fyrir félagið á þessum tímapunkti að skipta um þjálfara." KR-ingar eru ekki byrjaðir að leita að nýjum þjálfara en Guðjón Þórðarson og Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, hafa sterklega verið nefndir í því sambandi. "Við vitum vel hvaða nöfn eru í gangi og við munum kíkja á það. Einnig kemur til greina að fá erlendan þjálfara til félagsins. Við munum skoða ýmsa möguleika," sagði Jónas, en það er mikil vinna fram undan hjá stjórn KR enda þarf að finna nýjan þjálfara og svo er stór hópur af leikmönnum hjá félaginu með lausan samning. "Það er vissulega mikil vinna fram undan og við verðum að vanda til verka. Ég vil ekkert segja til um það að svo komnu máli hverjum við ætlum að bjóða nýjan samning en það verður allt skoðað á næstu dögum."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Fótbolti „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Íslenski boltinn Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Fótbolti Hörð barátta um Gullskóinn Fótbolti Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Sport Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Körfubolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sjá meira