Rekinn í beinni á Sýn 22. september 2004 00:01
Njáll Eiðsson segir að Hemmi Gunn hafi rekið hann sem þjálfara Vals í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Það dugði honum ekki að gera Valsmenn að 1. deildarmeisturum. Knattspyrnuþjálfarinn Njáll Eiðsson segir farir sínar ekki sléttar þessa dagana. Hann tók við Valsmönnum eftir að þeir féllu úr úrvalsdeild í fyrra og gerði við þá þriggja ára samning. Hann gerði síðan fína hluti með liðið í sumar. Kom því upp og gott betur því Valur vann 1. deildina. Einhvern tímann hefði slíkur árangur dugað þjálfara til að halda starfinu en það virðist ekki hafa dugað að þessu sinni. Njáll segir nefnilega að hann verði rekinn 1. október næstkomandi. „Það er uppsagnarákvæði í samningi okkar en það tekur ekki gildi fyrr en 1. október. Þá munu þeir losa sig við mig,“ sagði Njáll frekar súr í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég hef einfaldlega ekki það traust sem ég þarf innan stjórnar félagsins og þá er málið orðið frekar einfalt.“ Njáll segist hafa gert sér grein fyrir því að eitthvað furðulegt væri í gangi er hann horfði á þátt Valsarans Guðna Bergssonar á Sýn um daginn en þar talaði Hemmi Gunn um að það yrði hallarbylting á Hlíðarenda. Tilheyrir klíkunni „Ég var bara rekinn í beinni þótt það hafi ekki verið af stjórnarmanni. Hemmi tilheyrir ákveðinni klíku innan félagsins og vissi greinilega ansi mikið um framtíðina. Ég er pottþéttur að Guðni vissi vel hvað hann talaði um. Sástu ekki hvað hann var vandræðalegur?“ sagði Njáll, sem segist í kjölfarið hafa leitað svara við sinni stöðu. „Þeir vilja ekkert segja og það er greinilegt að þeir eru tilbúnir með einhvern mann í starfið. Ekki nýt ég trausts hjá stjórninni. Mér var verulega brugðið er ég horfði á þessa uppákomu.“ Það var fátt um svör hjá Berki Edvardssyni, formanni knattspyrnudeildar Vals, er Fréttablaðið leitaði álits hans á ummælum Njáls. Ætla sér í toppbaráttuna „Ég vil sem minnst um málið segja en þetta kemur allt í ljós 1. október. Eitt sem er víst er að við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni í efstu deild enda búnir að fá nóg af því að vera eitthvert jójólið. Hvað varðar þjálfaramálin þá eru þau óljós í augnablikinu en skýrast vonandi fljótlega. Við vorum ekkert búnir að loka á Njál en hann virðist hafa gert það sjálfur en hann var mjög óþolinmóður og fór fram á skýr svör sem við vorum ekki tilbúnir að gefa honum strax,“ sagði Börkur Edvardsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Grindavík/Njarðvík - Víkingur | Hörð barátta um miðja deild FH - Valur | Kemst FH aftur á toppinn? Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu deild kvenna og Bestu mörkin Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ „Fengum það sem við verðskulduðum“ Sjá meira