Eiturefni geymd í Reykjavík 26. nóvember 2004 00:01
Ekki hefur fundist staður á landinu til að urða PCB-efni sem nú eru geymd í sekkjum á lóð Hringrásar í Reykjavík. Umhverfisráðuneytið hefur leitað að hentugum urðunarstað í nokkur ár en án árangurs. Efnið getur verið hættulegt mönnum og dýrum berist það í fæðukeðjuna. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, segir að efnið sé geymt á viðunandi hátt við Hringrás og engin fyrirsjáanleg hætta sé á ferðum. Hins vegar sé ljóst að þetta sé ekki varanleg lausn. Hann segir að ráðuneytið hafi fundið nokkur svæði en vegna mótmæla landeigenda hafi verið fallið frá því að urða efnin þar. Því sé enn óljóst hvenær takist að finna hentugri urðunarstað. Árið 1989 greindist eiturefnið PCB í jarðvegi á athafnasvæði Hringrásar og árið 1993 var fullyrt að mengunin væri eitt mesta umhverfisvandamál sem komið hefði upp hér á landi. Þá sagðist Katrín Fjeldsted, þáverandi formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur, vera þeirrar skoðunar að fyrirtækinu yrði að útvega aðra og hentugri lóð til að uppfylla ströngustu kröfur um mengunarvarnir. Árið 2001 kom fyrirtækið 250-300 rúmmetrum af þessum mengaða jarðvegi fyrir í sekkjum sem standa enn á lóð fyrirtækisins. Þá þótti of dýrt að senda jarðveginn úr landi eða steypa þró og loka henni eins og tíðkast víða erlendis. Starfshópur á vegum umhverfisráðuneytisins var þá skipaður til að finna stað þar sem hægt væri að urða spilliefni á borð við þessi. Hann átti að skila niðurstöðu í lok árs 2001. Magnús Jóhannesson segist ekki vita um fleiri svæði þar sem PCB-efni séu geymd á landinu en þau hafi safnast upp hjá Hringrás vegna þess að fyrirtækið stundi brotajárnsvinnslu.
Fréttir Innlent Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira