Innlent

Kafarar leita í sjó

Kafarar leituðu í sjó við Geldinganes í Reykjavík í dag vegna hvarfs hinnar indónesísku Sri Ramawati fyrir tveimur vikum. För eftir jeppa fundust á svæðinu sem gætu verið eftir jeppa mannsins sem grunaður er um að vera valdur að hvarfi hennar. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á miðvikudag, og eru allar líkur á að krafist verði áframhaldandi varðhalds. Niðurstöðu úr DNA-rannsókn vegna blóðs sem fannst í íbúð mannsins og bíl er að vænta í vikunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×