Innlent

Víða flaggað í hálfa stöng

Flaggað verður í hálfa stöng víða um land í dag, til að mótmæla stefnu stjórnvalda í umhverfismálum á hálendi Íslands. Náttúruvaktin hefur tilnefnt 19. júlí sem dag hálendisins og bendir á að fjölmargar náttúruperlur eru í yfirvofandi hættu, svo sem Þjórsárver, Langisjór, Torfajökulssvæðið við Landmannalaugar, Laxá, Skjálfandafljót og jafnvel Jökulsá á Fjöllum. 19. júlí varð fyrir valinu sem dagur hálendisins af tveimur ástæðum. Þennan dag fyrir tveimur árum flögguðu landverðir og skálaverðir í hálfa stöng víða á hálendinu til að mótmæla undirritun viljayfirlýsingar milli Alcoa og stjórnvalda um álver í Reyðarfirði og þeim óafturkræfu náttúruspjöllum sem Kárahnjúkavirkjun hefur í för með sér. Sama dag 1998 flaggaði Guðmundur Páll Ólafsson rithöfundur og náttúrufræðingur í hálfa stöng við Fögruhveri til að mótmæla því að þeim yrði sökkt í þágu virkjanaframkvæmda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×