Innlent

Framkvæmdir fyrir endur

Hringbraut hefur verið þrengd við Sæmundargötu þar sem verið er að endurnýja ræsi fyrir endur svo þær komist leiðar sinnar undir akbrautina. Umferð hefur ekki raskast verulega vegna framkvæmdanna sem lýkur um miðjan ágúst, þó mönnum seinki líklega aðeins á háannatíma. Það ætti samt ekki að fara í taugarnar á ökumönnum með tilliti til þess að verið er að bæta samgöngur fyrir endurnar. Eiður Haraldsson, framkvæmdastjóri verktakans Háfells, segir framkvæmdirnar ekki aðeins snúast um endurnar heldur sé þetta einnig hluti af lagningu nýju Hringbrautarinnar. Hann segir þetta ekki hafa haft mikil áhrif á umferðina enda sé hún með minnsta móti á þessum árstíma. Áætlað er að framkvæmdum ljúki um miðjan ágúst og verða báðir hlutar Hringbrautar þá opnaðir að nýju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×