Tveggja vikna gæsluvarðhald 7. júlí 2004 00:01
Maður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við hvarf þriggja barna móður. Ekkert hefur spurst til konunnar frá því á aðfaranótt sunnudags. Ummerki á heimili mannsins benda til voðaverks. Maðurinn sem um ræðir er fyrrum sambýlismaður konunnar. Hún er um þrítugt, fluttist hingað til lands frá Indónesíu og á ungt barn með manninum sem leiddur var fyrir dómara í dag og situr nú í gæsluvarðhaldi. Maðurinn hefur neitað því staðfastlega við yfirheyrslur að hafa átt aðild að hvarfi konunnar. Hann er sá eini sem hefur verið handtekinn vegna málsins. Síðast er vitað um ferðir konunnar aðfararnótt sunnudags þegar hún er talin hafa verið á leið í heimsókn til fyrrum sambýlismanns síns á heimili hans við Stórholt í Reykjavík. Ættingjar tilkynntu um hvarf hennar á mánudag og í gær girti tæknideild lögreglunnar húsið við Stórholt af þar sem fram fór húsleit og vettvangsrannsókn sem stóð enn yfir í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu fundust nægar vísbendingar á vettvangi til að handtaka manninn. Blóð fannst bæði inni í íbúðinni og fyrir utan húsið. Þá var hald lagt á vopn í eigu mannsins og bifreið sem var rannsökuð til að til að ganga úr skugga um hvort konan kynni að hafa verið flutt á brott. Lögregla verst allra frétta af málinu og segir rannsókn þess vera á viðkvæmu stigi. Leit að konunni stendur enn yfir en lögregla hefur þó ekki séð ástæðu til að auglýsa eftir henni.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira