Allt að 10 daga gæsluvarðhald 7. júlí 2004 00:01
Krafist verður allt að tíu daga gæsluvarðhalds nú í hádeginu yfir rúmlega fertugum manni sem grunaður er um aðild að hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður. Konan, sem er um þrítugt, hefur ekki sést síðan aðfararnótt sunnudags. Maðurinn var handtekinn síðdegis í gær í tengslum við rannsókn á hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar. Húsleit var gerð á heimili hans í Stórholti í Reykjavík og var það girt af. Einnig kom tæknideild lögreglunnar fyrir tjaldi og búnaði í hluta garðsins til að leita að vísbendingum. Samkvæmt heimildum fréttastofu fundust nægar vísbendingar á staðnum til að handtaka manninn. Ennfremur var hald lagt á jeppabifreið hans til að rannsaka hvort konan kynni að hafa verið flutt á brott í henni. Að sögn Sigurbjörns Víðis Eggertssonar hjá rannsóknardeild lögreglunnar tilkynntu börn og önnur skyldmenni konunnar um hvarf hennar í fyrradag en ekki hafði sést til hennar síðan á aðfararnótt sunnudags. Hún er rúmlega þrítug og af asísku bergi brotin en rannsókn á hvarfi hennar hófst um hádegisbil í gær. Hún og maðurinn höfðu verið í sambúð um skeið. Lögreglan leitaði ummerkja langt fram á kvöld í gær og verður rannsókninni haldið áfram í dag. Ekki fékkst staðfest hvort ummerki um átök hefðu fundist í íbúðinni en samkvæmt heimildum fréttastofu fannst blóð bæði inni í íbúðinni og fyrir utan húsið. Sigurbjörn Viðir Eggertsson segir að enginn annar hafi verið handtekinn vegna málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Sjá meira