Engin lausn í sjónmáli 27. september 2004 00:01
Engin lausn er í sjónmáli í kennaradeilunni. Deilendur reikna ekki með því að leggja fram sáttatilboð á fimmtudag og ríkissáttasemjari segir engar forsendur fyrir sáttatillögu. Staðan er því hin sama og þegar síðasti fundur var haldinn á fimmtudaginn. Birgir Björn Sigurjónsson formaður samninganefndar sveitarfélaganna segist ekki reikna með að sveitarfélögin geri kennurum neitt tilboð í deilunni á samningafundi næsta fimmtudag. Hann segir samninganefnd sveitarfélaga ekki hafa hist síðan upp úr viðræðunum slitnaði á fimmtudag en menn séu þó í daglegu sambandi. Finnbogi Sigurðsson formaður samninganefndar grunnskólakennara segir ekkert tilboð sé í undirbúningi að hálfu kennara. Kennarar ætli eftir sem áður ekki að gefa afslátt af þremur grundvallarkröfum sínum, sem séu minni kennsluskylda, skilgreining á vinnutíma og að svokallaður launapottur verði felldur inn í grunnlaun. Hann segir stöðuna óbreytta frá því fyrir helgi og á ekki von á neinum tíðindum á samningafundi á fimmtudag. Hann segist ekki eiga von á neinu nýju frá samninganefnd sveitafélaganna og sömuleiðis komi ekkert nýtt frá kennurum. Þeir mæti líklega með hundshaus, eins og formaður samninganefndar sveitafélaganna sagði að þeir myndu gera. Hann segir kennara alltaf tilbúna að ræða málin, en hins vegar séu fyrrgreindar þrjár kröfur algerlega ófrávíkjanlegar og verði það áfram. Birgir Björn Sigurjónsson segir þessar kröfur bæði dýrar og skaðlegar fyrir skólastarfið enda feli þær í sér að verkstjórnarvald skólastjóra verði minnkað til muna. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari segir að ef deilendur séu enn í sömu sporum sé tæplega forsenda fyrir því að leggja fram miðlunartillögu. Slíkar tillögur séu til þess fallnar að brúa eitthvað bil, en ekki að gera hreinlega nýjan samning eins og þyrfti til í þessu tilfelli.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira