Innlent

Afkoma sauðfjárbænda versnar

Afkoma sauðfjárbænda var lakari í fyrra en árið áður þrátt fyrir að ýmis skilyrði hafi breyst þeim í hag. Eins og fram hefur komið hefur sauðfjárræktin átt hvað erfiðast uppdráttar af öllum greinum landbúnaðargeirans í nokkur misseri. En þrátt fyrir slaka afkomu örlaði á hagstæðum breytingum í fyrra, sem væntanelga eiga eftir að skila sér enn frekar. Þar má nefna hagstæða vaxtaþróun, sem haldið hefur áfram síðan, framlegð sauðfjárbúnanna jókst í fyrra og heldur að líkindum áfram að aukast, framleiðsla og sala jukust líka og fjármagnsliðir lækkuðu. Hinsvegar jukust firningar og afurðaverð lækkaði um hvorki meira né minna en rúm 10 prósent á árinu. Það skýrir að lang mestu leyti lakari afkomu í fyrra en árið áður, því hefði verð haldist óbreytt frá fyrra ári, hefði afkoman í heild batnað. Þótt meðalbúin telji aðeins 314 kindur á vetrarfóðrum, er þróunin að verða sú að búum fækki og þau sem eftir lifa, stækki, sem gefur svigrúm til aukins hagræðis og betri nýtingar tækja og húsakosts. Líkur eru á betri afkomu í ár því afurðaverð fer hækkandi á ný, þótt það hafi hvergi nærri vegið upp lækkunina í fyrra, og sölutölur í ár eru hærri en í fyrra. Að mati sérfróðra manna um sauðfjárbúskap má batinn í greininni ekki lengur láta á sér standa, því meðalaldur sauðfjárbænda er kominn upp í 53 ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×