Orð Eiríks Tómassonar vega þungt 9. júlí 2004 00:01
Jónína Bjartmarz þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður Allsherjarnefndar segist hafa lært sama stjórnskipunarrétt og Eiríkur Tómasson lagaprófessor. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um ummæli Davíðs Oddsonar þess efnis að ríkisstjórnin geti ekki gert mikið með vitlaus lagaálit. Allsherjarnefnd hitti lögspekingana Eirík Tómasson og Davíð Þór Björgvinsson fyrir hádegi en Þjóðarhreyfinguna, sem berst gegn fjölmiðlalögunum, eftir hádegi þegar fréttir höfðu borist af ummælum forsætisráðherra um vitlausa lögfræðinga. Jónína Bjartmarz, varaformaður Allsherjarnefndar, sagði vinnu nefndarinnar rétt að byrja en vissulega myndu orð Eiríks Tómassonar vega þungt enda væri hann prófessor í stjórnskipunarrétti. Hún vildi þó ekki segja hvort hún væri sammála honum eða ekki. Um ummæli forsætisráðherra sagðist Jónína ekki hafa neitt að segja. Stjórnarandstaðan er sammála um að ummæli Davíðs Oddssonar hitti hann sjálfan fyrir. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna segir ummæli forsætisráðherra í sama stíl og þegar hann hæddist að þúsundum manna sem mótmæltu fjölmiðlalögunum í gær. Ummæli hans afgreiði sig sjálf. Guðjón A Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, undrast það að heyra Davíð Oddsson segja að hægt sé að fá lögfræðinga útí bæ til að segja einhverja vitleysu. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir orðbragð forsætisráðherra dæma sig sjálf. Þegar menn geti ekki tekið rökum og séu ekki reiðubúnir til að skoða röksemdir helsta sérfræðings í stjórnskipunarmálum, séu menn komnir á einstígi og rati ekki til baka. Eiríki Tómassyni finnst ummælin ekki sæmandi forsætisráðherra en annars séu þau ekki svara verð.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Sjá meira