Þjónustan á Vogi minnkuð 21. nóvember 2004 00:01
Sjö stöðugildi verða lögð niður á Vogi og þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga skert í sparnaðarskyni. SÁÁ hefur spennt bogann of hátt miðað við tekjur. Áfram verður staðið við þjónustusamning sem í gildi er milli heilbrigðisráðuneytisins og SÁÁ en önnur þjónusta skorin niður. Þórarinn Tyrfingsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs hjá SÁÁ, segir að það sé eins og alþingismenn og aðrir í þjóðfélaginu skilji ekki að bráðaþjónustan í Reykjavík þarf aukna fjármuni vegna breyttrar aðkomu sjúklinga að henni og breytinga á þeirri þjónustu sem veitt er. Sjö starfsmönnum sjúkrahússins Vogs, sem er þungamiðja starfsemi SÁÁ, verður sagt upp og dregið saman í þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ráðgjafavakt og sú bráðaþjónusta sem veitt hefur verið við göngudeild meðferðarstofnunarinnar verður lögð af. Innlögnum verður fækkað úr 2350 í 2100, eða um 10%, en við það mun svigrúm til bráða- og flýtiinnlagna minnka verulega. Dregið verður úr viðhaldsmeðferð fyrir ópíumfíkla frá því sem nú er og nýir sjúklingar munu ekki fá þessa meðferð, þótt hún þyki hafa borið mjög góðan árangur. Sjúklingar sem eru yngri en 16 ára verða ekki innritaðir á Vog og þjónusta við vímuefnafíkla sem jafnframt eru með geðsjúkdóma mun minnka. Þeir sem notið hafa þessarar þjónustu á Vogi undanfarin ár verða nú að leita annað. Þórarinn segir að hægt sé að leita til bráðamóttakanna á Landspítalanum, en þó séu þær ekki sérhæfðar til að fást þennan vanda. Þessu fylgir mikill kostnaður fyrir Landspítalann. Með aðgerðunum næst 45 milljón króna sparnaður sem nemur rúmlega 10 prósentum af um 380 milljón króna árlegum rekstrarkostnaði á Vogi.
Fréttir Innlent Mest lesið Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Merkúr Máni sótti brons á Ólympíuleikunum í líffræði Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Erlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent Virknin minnkað þó áfram gjósi Innlent Fleiri fréttir Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons á Ólympíuleikunum í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Sjá meira