Innlent

Skilorð fyrir slagsmál

24 ára maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir líkamsárás og áfengislagabrot. Maðurinn réðst að öðrum manni á verönd fyrir framan veitingastað á Húsavík þannig að sá sem ráðist var á féll niður stiga. Þar lenti ákærði ofan á manninum og tókust þeir þar á uns lögregla skildi þá að. Maðurinn sem ráðist var á hlaut áverka og brotnaði meðal annars upp úr tveimur tönnum. Þá er maðurinn sakfelldur fyrir að vera með ölvun og handalögmál á almannafæri þetta sama kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×