Innlent

Stórlistasýning fyrir austan

Fantasy Island, stórlistasýning íslenskra og erlendra listamanna, var opnuð í gær í Hallormsstaðaskógi og á Eiðum. Öll verkin eru ný og sérstaklega gerð fyrir sýninguna. Það eru Skógrækt ríkisins á Hallormsstað, Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri og Hannes Lárusson myndlistarmaður sem standa að sýningunni og eru Eiðar ehf samstarfsaðili þeirra. Forsetafrú Íslands ávarpaði gesti við opnunina í gær en sagðist ekki ætla að halda ræðu. Hún léti eiginmann sinn um slíkt. Dorrit sagði það hins vegar vera sér sanna ánægju að opna sýninguna í hinu undraverða íslenska landslagi. Hún sagði svo á íslensku: „Sýningin er opin.“ Fjöldinn allur af listaverkum er víða um Hallormsstaðaskóg og á Eiðum. Meðal þekktra gesta á sýningunni eru tveir afar þekktir bandarískir myndlistarmenn, Paul McCarthy og Jason Rhoaedes, sem sýna eftirlíkingu af Macys stórverslun í Los Angeles. Sýningin verður opin bæði í Hallormsstað og Eiðum til 1. október, en verkin á henni þykja spanna afar vítt svið myndrænnar hugsunar. Undirbúningur hefur verið mikill, að sögn Heklu Daggar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra sýningarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×