Innlent

Skarst mikið í andliti

Tæplega þrítugur maður skarst mikið í andliti eftir að rúmlega tvítugur maður barði hann með bjórflösku í höfuðið á Húsavík. Mönnunum sinnaðist þar sem þeir voru staddir á leikvelli skammt frá fjölbýlishúsum í bænum. Málið er því næst sem upplýst þar sem árásarmaðurinn hefur játað verknaðinn. Rannsókn mun þó fara fram af hálfu lögreglunnar þar sem vitni verða yfirheyrð en þaðan fer málið fyrir dómstóla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×