Varnarsvæðið nær út fyrir girðingu 21. júlí 2004 00:01
Vopnaðir bandarískir hermenn hafa þrisvar á skömmum tíma haft afskipti af ljósmyndurum Víkurfrétta. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli segir varnarsvæðið ná út fyrir girðinguna sem umlykur herstöðina. Það var síðast í gær sem vopnaðir varnarliðsmenn umkringdu ljósmyndara Víkurfrétta þar sem hann var að mynda í grennd við gamla Patterson völlinn. Ljósmyndarinn, Atli Már Gylfason, segir varnarliðsmennina hafa spurt sig hvað hann væri að gera þarna, tekið niður nafn og kennitölu og óskað eftir því að fá myndavél hans og kortið sem í henni væri. Atli Már segist hins vegar hafa harðneitað því og eftir japl, jaml og fuður fékk hann að fara. Meðan fréttamenn Stöðvar 2 biðu eftir að hitta Atla til viðtals, um hálfan kílómetra frá aðalhliði herstöðvarinnar, kom til þeirra íslenskur lögregluþjónn. Hann var kurteis og meinaði þeim ekki myndatöku en sagði að bandarískir kollegar sínir vildu vita hvað væri á seyði. Að því loknu var leitað til Jóhanns R. Benediktssonar, Sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, til að forvitnast um hvaða umgengnisreglur giltu eiginlega þarna syðra. Jóhann sagði misskilning fólginn í því að fólk héldi að varnarsvæðið markaðist af girðingunni sem umlykur herstöðina. Svo sé hins vegar ekki því það sé talsvert stærra. Ljósmyndarinn hafi því staðið á varnarsvæði. Jóhann segir fréttamenn á Suðurnesjum eiga að vita betur en ef þeir séu óvissir um þetta, þá eigi þeir að hafa samband við Sýslumannsembættið og fá liðsinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Sjá meira