Gert að sæta geðrannsókn 21. júlí 2004 00:01
Gæsluvarðhald yfir Hákoni Eydal, manninum sem grunaður er um að hafa banað Sri Rahmawati, var framlengt um þrjár vikur í gær eða til 11. ágúst. Þá var honum einnig gert að sæta geðrannsókn. Hákon hefur tekið sér þriggja daga frest til að ákveða hvort hann kæri gæsluvarðhaldsúrskurðinn. Hilmar Baldursson, verjandi Hákonar, segir að umbjóðandi sinn taki sér þann frest sem hann hefur til að ákveða hvort hann kæri gæsluvarðhaldsúrskurðinn. Aðspurður hvort Hákon hefði í einhverju breytt þeirri yfirlýsingu sinni að hann hefði ekkert með hvarf Sri að gera svaraði Hilmar: "Hann hefur ekkert tjáð sig um það." Hákon hefur dvalið í gæsluvarðhaldi í tvær vikur meðan á rannsókn málsins hefur staðið. Hilmar kvaðst ekki geta tjáð sig um líðan hans. Hákon sem er fyrrverandi sambýlismaður og barnsfaðir Sri er grunaður um að hafa valdið dauða hennar á heimili sínu í Stórholti eða átt þátt í hvarfi hennar. Síðast er vitað um ferðir Sri á heimili Hákonar að morgni þess dags. Mikið blóð fannst á heimili Hákonar og blóð fannst einnig í jeppa hans. Lögreglu grunaði strax að glæpur hefði verið framinn og var Hákon handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í kjölfarið. Í vikunni komu niðurstöður úr DNA-rannsóknum frá Noregi sem sýndu að blóðið sem fannst í íbúðinni við Stórholt og í bíl Hákonar var allt úr Sri. Lögregla og björgunarsveitir leituðu að Sri í nágrenni Reykjavíkur um helgina, bæði á landi og úr lofti. Nú eftir helgi leituðu kafarar hennar í sjónum við bryggjuna á Geldinganesi. Þá hefur einnig verið leitað á svæðum vestan við Reykjavík en án árangurs.
Fréttir Innlent Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira