Rás 1 og 2 lágu niðri 6. ágúst 2004 00:01
Bilun í spennugjafa í útsendingarborði Rásar 2 í morgun varð til þess að útsendingar beggja rása Ríkisútvarpsins lágu niðri í fimmtán mínútur á höfuðborgarsvæðinu. Deildarstjóri hljóðdeildar RÚV telur ekki þörf á frekari aðgreiningu rafkerfisins. Útsendingarrofið hefði verið minna ef rafmagn hefði farið af öllu húsnæðinu. Rétt fyrir níufréttir í morgun varð bilun í spennugjafa í stúdiói 1, þaðan sem var verið að senda út útsendingu Rásar 2. Álagið á rafkerfið var það mikið að höfuðrofi í töflu fyrir hluta hljóðvera Ríkisútvarpsins sló út og voru þau hljóðver því rafmagnslaus. Þannig var þögn á öllu dreifikerfinu, þrátt fyrir að sendarnir væru virkir, þar sem hvorki barst útsendingarmerki til sendanna frá Rás 1 né Rás 2. En ekki voru öll hljóðver Ríkisútvarpsins rafmagnslaus. Runólfur Þorláksson, deildarstjóri hljóðdeildar RÚV, segir að starfsfólk hafi verið flutt í önnur hljóðver og þau tengd inn á dreifikerfið í stað þeirra sem voru dauð. Eftir um fimm mínútur hófust útsendingar á langbylgju og á landsbyggðinni. Útsendingar á höfuðborgarsvæðinu hófust hins vegar ekki fyrr en eftir að minnsta kosti fimmtán mínútna rof. Runólfur segir skýringuna vera þá að forgangsröðunin hafi einfaldlega verið sú að tengja inn landsbyggðina fyrst og það hafi tekið nokkrar mínútur til viðbótar að tengja nýju hljóðverin við sendana á Vatnsenda og Skálafelli. Hefði rafmagnið farið af öllu húsinu segir Runólfur að skiptingin yfir á varaleiðir hefði tekið skemmri tíma; það hefði verið erfiðara að eiga við bilunina í morgun þar sem hluti hússins var rafmagnslaus. Aðspurður hvort hann sé sáttur við tímann sem það tók að koma báðum rásum Ríkisútvarpsins í loftið á ný, m.a. í ljósi umræðunnar um öryggishlutverk RÚV, segir Runólfur að menn séu að sjálfsögðu aldrei ánægðir þegar svona gerist. Það taki hins vegar alltaf einhvern tíma að tengja upp ný hljóðver og flytja mannskapinn á milli. Spurður hvort ekki sé þörf á aðgreiningu rafkerfisins segir Runólfur að það sé aðgreint en bilunin hafi verið það umfangsmikil að rafmagnið hefði farið af hljóðverum beggja rása. Þetta er mjög óvenjulegt að sögn Runólfs og eru rafvirkjar að skoða málið.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira