Innlent

Fasteignamat hækkar um milljónir

Fasteignamat íbúða og íbúðalóða í Fjarðabyggð mun hækka um 25% frá og með 1. september næstkomandi, um tæpa tvo milljarða króna. Þetta er niðurstaða endurmats sem Fasteignamat ríkisins hefur gert og byggist á kaupsamningum síðustu missera í sveitarfélaginu. Svokölluð yfirfasteignamatsnefnd hækkaði mat á íbúðarhúsnæði og lóðum í Fjarðabyggð um 20% á síðasta ári. Þá töldu bæjaryfirvöld ekki nóg að gert og fóru því fram á endurmat. Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins hækkar því fasteignamat íbúða og íbúðalóða í sveitarfélaginu úr sjö milljörðum og 240 milljónum í níu milljarða og sextíu milljónir. Tilkynningar um þetta verða sendar eigendum fasteigna á næstunni og þeim gefst kostur á að skila inn athugasemdum til loka ágúst. Breytingin tekur hins vegar gildi 1. september næstkomandi. Að óbreyttu þýðir þessi breyting samsvarandi hækkun á fasteignagjöldum í sveitarfélaginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×