Allir nýnemar fá skólavist 23. júní 2004 00:01
Fjöldi grunnskólanemenda sem sótti um framhaldsskólavist næsta vetur kom menntamálaráðuneytinu í opna skjöldu. Allt að 98% árgangsins sótti um sem er meiri ásókn en búist var við. Samkvæmt tölum hagstofunnar er það um 5-7% aukning frá árinu 2002, auk þess sem tæplega 500 fleiri skipa þennan árgang en þann síðasta. Fjölgunin er ánægjuleg, segir menntamálaráðherra. Stjórnendum framhaldsskólanna var tilkynnt um aukna fjárveitingu að upphæð 250 milljónir króna í gær. "Núna er meginmál okkar að koma öllum inn í skólana og þess vegna að fara út í það að setja upp lausar kennslustofur ef svo ber við," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. "Í morgun hefur menntamálaráðuneytið verið í sambandi við skólameistara og tilkynnt þeim það að það eigi að vera opið fyrir alla nýnema grunnskólanna og við séum búin að tryggja fjármagn fyrir þetta ár í fjáraukalögum." Þorgerður segir að reynt verði að tryggja öllum eldri nemendum skólavist. "Ég sé fram á það að það verði fáir sem koma til með að standa fram af borðinu. Við komum að öllum líkindum til með að leysa það mál líka." Nemendur sem hafa fengið neikvætt svar frá skólum sem þeir völdu sem fyrsta kost geta átt von á að því verði breytt. Þeir hafa þá hugsanlega fengið inni í öðrum skóla. Það verður til þess að hringamyndun fer af stað þegar nemendurnir skipti. "Í ágúst verður þetta endanlega komið á hreint," segir Þorgerður. Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður félags framhaldsskóla og skólameistari Kvennaskólans, segir ráðningu kennara fyrir næsta vetur vera næsta verkefni framhaldsskólanna í ljósi fjölda nemendanna: "Þetta gerist ekki á einum degi að koma þessu heim og saman." Ingibjörg segir að einum bekk hafi verið bætt við hjá Kvennaskólanum sem leysi vanda 30 nýnema til viðbótar. Um 105-110 nýnemar sem sótt hafi um hjá Kvennaskólanum auk 20 lengra komna komist ekki að í haust.
Fréttir Innlent Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Fleiri fréttir Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Sjá meira