Árni Þór áfrýjar dómnum 23. júní 2004 00:01
Árni Þór Vigfússon, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Skjás Eins, mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Landssímamálinu svokallaða sem kveðinn var upp síðdegis, að sögn lögmanns hans, Gests Jónssonar. Árni Þór var dæmdur í tveggja ára fangelsi líkt og Kristján Ragnar Kristjánssons, fyrrverandi fjármálastjóri Skjás Eins, fyrir hylmingu, móttöku og ráðstöfun á annað hundrað milljóna frá Sveinbirni á árunum 1999-2001. Ekki hafa fengist svör við því hvort Kristján áfrýi dómnum en talið er líklegt að svo muni fara. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssímans og höfuðpaurinn í málinu, var dæmdur í óskilorðsbundið fjögurra og hálfs árs fangelsi. Ragnar Orri Benediktsson var dæmdur í óskilorðsbundið 8 mánaða fangelsi. Stúlka sem tengdist málinu var sýknuð af ákæru. Skaðabótakröfu Landssímans var vísað frá dómi á þeim forsendum að hún þurfi aðra og frekari umfjöllun. Sveinbjörn var dæmdur fyrir fjárdrátt upp á 261 milljón króna úr sjóðum Landssímans. Brotin áttu sér stað frá maí 1999 til maí 2003. Eins og áður sagði voru Árni Þór og Kristján dæmdir fyrir hylmingu, móttöku og ráðstöfun á annað hundrað milljóna frá Sveinbirni á árunum 1999-2001. Ákæran byggði meðal annars á því að Árna og Kristjáni hafi báðum verið kunnugt um að Sveinbjörn hafi með refsiverðum hætti komist yfir fjármunina hjá Landssímanum. Ragnar Orri hlaut dóm fyrir hylmingu sem meðal annars fólst í viðtöku og notkun á mánaðarlegum greiðslum frá júlí 2001 til júní 2002. Árni Þór, Kristján og Ragnar Orri lýstu allir yfir sakleysi sínu en í niðurstöðu dómsins segir að þegar litið er til gagna málsins, og því sem fram kom í meðferð þess, fái framburður þeirra engan veginn staðist. Sveinbjörn játaði hins vegar sök.
Fréttir Innlent Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira