Eldisþorskur eftirsóttari 23. júní 2004 00:01
Erlendir fiskkaupendur greiða hærra verð fyrir íslenskan eldisþorsk en villta þorskinn samkvæmt reynslu Brims fiskeldis við Eyjafjörð. Að vísu er um mjög lítið magn að ræða sem slátrað er hjá Brimi, eða 1,5-4 tonn á viku, en viðtökur lofa góðu. Að sögn Óttars Más Ingvasonar, framkvæmdastjóra Brims, legst margt á eitt. Í fyrsta lagi er fisknum slátrað rétt fyrir útflutning þannig að hann er glænýr. Hann er holdmeiri, stinnari og hvítari en villti þorskurinn en allir þessir eiginleikar eru eftirsóttir. Þá geta kaupendur stólað á visst magn frá eldinu að staðaldri, óháð því hvernig gefur á sjó eða hvernig veiðist. Loks stjórnar framleiðandinn öllu ferlinu, allt frá slátrun og þar til fiskurinn er kominn í hillur verslana, þannig að svonefndur líftími fisksins sem ferskur fiskur lengist til muna. Allt þetta lofar góðu en Óttar Már tekur fram að þrátt fyrir það sé mikil þróunarvinna framundan áður en þorskeldi verður arðbær atvinnmugrein hér á landi. Framundan sé meðal annars að þróa heppilega eldisstofna, líkt og gert hefur verið í laxeldinu, sem geti tekið a.m.k. tíu ár. Brim safnar bæði lifandi villtum smáþorski til eldis og elur upp seiði sem klakið er í Þorlákshöfn. Að sögn Óttars Más gengur hvort tveggja vel.
Fréttir Innlent Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira