Enn stímir Landspítalinn framúr 23. júní 2004 00:01
Bráðabirgðauppgjör Landspítala háskólasjúkrahúss eftir fyrstu fimm mánuði ársins sýnir 99.5 m.kr. umfram fjárheimildir tímabilsins eða 0,9%. Þetta kemur fram í stjórnunarupplýsingum spítalans fyrir tímabilið janúar til maí. Launagjöld eru 0,6% umfram áætlun og rekstrargjöld 2,4% umfram áætlun. Kostnaður vegna S-merktra lyfja eykst um 9,2% en lyfjakostnaður í heildina eykst um 4,6% frá fyrra ári. "Við fengum fyrstu áætlunina frá LSH í febrúar," sagði Einar Oddur kristjánsson varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, sem sæti á ásamt fimm öðrum í tilsjónarnefnd með rekstri spítalans. "Við fórum yfir hana og sendum ráðherra álit okkar á því í marsmánuði. Hann sendi það síðan áfram til forráðamanna spítalans. Við töldum þá að þeir ættu mjög langt í land með að aðgerðir þær sem þeir gripu til í janúar - febrúar dygðu." Einar Oddur sagði enn fremur, að nefndin myndi fara yfir stöðuna eins og hún væri nú og gef ráðherra skýrslu. Í stjórnunarupplýsingunum kemur einnig fram, að skurðaðgerðum fjölgaði fyrstu fimm mánuði ársins um 2,4% frá fyrra ári að meðtöldum ferliverkaaðgerðum á augum. Aðgerðum fjölgaði í almennum skurðlækningum, augnlækningum, barnaskurðlækningum, brjóstholsskurðlækningum, bæklunarlækningum, þvagfæraskurðlækningum og æðaskurðlækningum. Fækkun var á aðgerðum í háls-, nef- og eyrnalækningum, heila- og taugaskurðlækningum, kvenlækningum og lýtalækningum. Legur á bráðadeildum sjúkrahússins standa nokkurn veginn í stað en legudögum hefur fækkað um 6,8%. Meðallegutími styttist úr 8,7 dögum í 8,1 daga. Ef aðeins er litið til meðallegutíma á bráðadeildum sjúkrahússins þá styttist hann úr 5,0 dögum í 4,9 daga. Komum á göngudeildir fjölgar um 7,0% en fækkar á dagdeildum um 1,9%. Umtalsverð fjölgun er á slysa- og bráðamóttökur spítalans, aðallega á Hringbraut, á bráðamóttöku barna, bráðamóttöku geðdeilda og almenna bráðamóttöku við Hringbraut. Aukningin er 5,3% frá síðasta ári.
Fréttir Innlent Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira