Innlent

Enginn fyrsti bekkur á Patró

Enginn fyrsti bekkur verður í Grunnskóla Vesturbyggðar á Patreksfirði í vetur, því aðeins eitt barn í þeim árgangi er til staðar til að hefja nám. Foreldrar barnsins óskuðu eftir því að að það fengi að hefja nám ári fyrr til þess að vera ekki eitt í bekk og var fallist á það. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta gerist á Patreksfirði, en þar búa um 700 manns og þykir óvenjulegt að ein árgangur sé ekki stærri en raun ber vitni. Í árganginum sem hefur nám haustið 2005 eru ellefu börn og sautján í árgangnum sem hefur nám haustið 2006. Í skólanum nú eru átta til sextán börn í hverjum árgangi. Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skólastjóri Grunnskólans segir þetta ekki hafa áhrif á störf Grunnskólans að öðru leyti en að ekki verði ráðið í stöðugildi kennara sem sagði upp í vor. Alls starfa um sextán kennarar í grunnskólanum. Hún segir að árgangurinn sem átti að hefja nám í haust hafi verið mjög lítill en vegna brottflutninga hafi aðeins eitt barn verið eftir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×