Útihátíðir og ungmenni 27. júlí 2004 00:01
Ungmenni undir 16 ára aldri þurfa að vera í fylgd forráðamanna ef þau hyggjast leggja leið sína á útihátíð um Verslunarmannahelgina. Þetta segja lögin sem þó hafa verið þverbrotin síðustu áratugi. Um miðja síðustu öld fór töluvert að bera á ölvun unglinga tengdri útihátíðum. Árið 1952 mátti lesa í dagblöðum kvartanir yfir ,,óheyrilegri ölvun og skrílmennsku“ um Verslunarmannahelgina, þar sem ,,ölmóður óspektalýður ... framdi mikil spell“. Rætur þessarar hefðar eru þó taldar liggja enn lengra aftur samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir dómsmálaráðuneytið. Sú hátíð sem fékk einna mest umfjöllun á þessum árum var hátíð í Þjórsárdal árið 1963. Í Morgunblaðinu sagði að mörg ungmenni, flest á aldrinum 15 til 17 ára, hafi legið eins og hráviði um skóg og lautir, ósjálfbjarga af ölvun, en þeir sem enn höfðu meðvitund ráfuðu um og böðuðu sig í Sandá, ýmist í fötunum eða naktir. Þetta gerðist þrátt fyrir að lögreglan hafi deginum áður gert upptækar 60 flöskur af áfengi af 30 unglingum á aldrinum 15 til 19 ára. Margir þessara unglinga eru orðnir foreldrar í dag, jafnvel afar og ömmur, og standa mörg hver í stappi við sín börn sem eru harðákveðin í að fara á útihátíð með jafnöldrum sínum. Að mati Geirs Jóns Þórissonar yfirlögreglustjóra er enginn vafi á því hver ræður, lögum samkvæmt. Ef unglingurinn er yngri en 16 ára þá geta foreldrar sagt að það komi ekki til greina, og ef hann er yngri en 18 ára þá er hægt að bjóðast til að fara með honum. Fram að 18 ára aldri ráða nefnilega foreldrarnir. Vitað er að börn allt niður í 14 ára aldur hafi keypt miða á útihátíðir í ár. Þótt miðinn sé í hendi, með eða án samþykkis foreldris, er hann þó líklega einungis ávísun á vandræði. Geir Jón segir gæslumenn á útihátíðum hafa sent krakka, sem voru undir aldri, heim með fyrstu ferð. Hann væntir þess að þeir geri það líka núna.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira