D-listi vill vernda húsið 27. júlí 2004 00:01
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja vernda Austurbæjarbíó og vilja að kannað verði hvort hægt verði að reka þar menningarstarfsemi til frambúðar. Meirihlutinn í borgarstjórn telur ekki að borgin eigi að skipta sér af rekstri í húsinu. Stöð 2 sagði frá því gær að samkvæmt samningi við fyrri eiganda Austurbæjarbíós, Árna Samúelsson, er ekki leyfilegt að hefja kvikmyndahúsarekstur að nýju í húsinu. Árni vildi þannig tryggja að lenda ekki í frekari samkeppni á bíómarkaði. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn eru andvígir því að rífa húsið og telja að þrátt fyrir þessa staðreynd hljóti að vera unnt að finna rekstrargrundvöll í húsinu. Vilhjálmur Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, telur að borgarayfirvöld eigi að setjast niður með eigendum hússins, og jafnvel fleiri aðilum, og kanna alla hugsanlega möguleika. R-listinn telur ekki forsvaranlegt að borgin taki þátt í rekstri hússins. Reykjavíkurborg eigi nóg með að standa fyrir rekstri Borgarleikhússins, Iðnó og Tjarnarbíós, auk þess sem stefnt sé að því að byggja tónlistar- og ráðstefnuhús fyrir milljarða króna. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulagsnefndar borgarinnar, segir að alls ekki komi til greina að sínu mati að borgin kaupi húsið af verktökum og fari að reka þar menningarstarfsemi. Vilhjálmur segist ekki skilja þessar yfirlýsingar yfirvalda og finnst þær ekki tímabærar. Í könnun um helgina kom fram að 70% borgarbúa vilja hlífa húsinu. Aðspurð hvernig starfsemi geti þá þrifist í því segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir að hún vilji sjá húsið sem „menningarhús með reisn “ og þá hugsi hún til slíks húss sem er í Helsinki. Það sé allt í senn kvikmyndahús, kaffihús, bókasafn, tónleikasalur o.fl. og sameini menningarlegar samkomur sem eigi sér einhvern samnefnara á því sviði.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fleiri fréttir Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Sjá meira