Færeyingar fækka sóknardögum 27. júlí 2004 00:01
Fiskistofnar á Færeyjabanka eru svo illa farnir að færeysk stjórnvöld hyggjast draga mjög úr sókn skipa þar. Lagt er til að sóknardögum verði fækkað um tíu prósent og að svæðið verði friðað fyrir veiðum í fjórar til sex vikur yfir hrygningartímann. Þrátt fyrir að þessar hugmyndir hafi valdið mikilli reiði útgerðarmanna og sjómanna eru aðgerðirnar mun minni en erlend samtök og stofnanir hafa lagt til við Færeyinga. Færeysk stjórnvöld hafa heimilað veiði umfram það sem alþjóðastofnanir hafa lagt til en nú er svo komið að stjórnmálamenn telja nauðsynlegt að grípa til aðgerða og það hastarlegra. Henrik Old, formaður atvinnumálanefndar færeyska lögþingsins, sagði í viðtali við dagblaðið Sosialin að Færeyjabanki væri svo illa farinn að réttast hefði verið að friða hann alveg í eitt eða tvö ár. Varaformaður nefndarinnar, Alfred Olsen, sagði í sama blaði að sóknin í stofna á Færeyjabanka væri of mikil og að nauðsynlegt væri að draga úr fjölda sóknardaga. Aðeins línubátar mega veiða á bankanum. Jón Kristjánsson fiskifræðingur var ráðgjafi sjómanna og útgerðarmanna í Færeyjum, en þeir sendu sjávarútvegsráðherra bréf með tillögum sem byggðu á hans áliti. Jón telur ekki ekki hyggilegt að draga úr sókn á Færeyjabanka. "Það hefur komið í ljós við rannsóknir að fiskurinn við Færeyjabanka hefur horast niður og það er ekki merki um ofveiði. Þetta bendir frekar til fæðuskorts og það er því röng ráðgjöf að leggja til að draga úr veiðum." Jón telur að ástæðan fyrir því að lagt sé til að fækka sóknardögum við Færeyjabanka, sé sú að svæðið rúmar ekki marga báta því það er lítið að stærð. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr í sjávarútvegsnefnd. Honum þykir leitt að Færeyingar hafi ekki náð að byggja upp stofna sína og þurfi að grípa til þessara ráðstafana. Um álit Jóns segir Guðlaugur að það sé í mörg horn að líta. "Ég get vel skilið að menn vilji hafa varann á, en það er óumdeilt að Færeyingum hefur ekki tekist að byggja upp stofna sína."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira