Sex tíma í skýrslutöku 27. júlí 2004 00:01
Jón Gerald Sullenberger var í sex klukkustundir í skýrslutökum hjá Ríkislögreglustjóra í gær vegna rannsóknar á meintum efnahagsbrotum forsvarsmanna Baugs. Hann er boðaður aftur í skýrslutöku í dag. Rannsóknin hefur staðið í tæp tvö ár. Jón Gerald mætti í skýrslutöku klukkan tvö í gærdag en kom út af skrifstofu Ríkislögreglustjóra snemma á níunda tímanum í gærkvöldi. Jón sagðist ekkert mega segja um hvað hafi verið rætt, en gaf upp að hann væri boðaður aftur í skýrslutöku í dag. Upphaflega stóð til að teknar yrðu skýrslur af Jóni Geraldi fyrir dómi þar sem öllum er opinn aðgangur en í gærmorgun var ákveðið að skýrslutakan skyldi fara fram fyrir luktum dyrum í húsakynnum Ríkislögreglustjóra. Aðspurður sagðist Jón Gerald ekki vita af hverju þessu hefði verið breytt, því þyrfti lögregla að svara. Jón fullyrðir að samningur sé í gildi milli hans og Baugs þess efnis að hann gefi aðeins skýrslur í dómssal. Hann segir það þó ekki rof á samningnum þó hann hafi gefið skýrslu fyrir luktum dyrum hjá Ríkislögreglustjóra. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, hafnar með öllu að nokkur slíkur samningur sé í gildi milli Baugs og Jóns Geralds: "Við getum ekki samið um það hvernig Jón Gerald hagar sínum málum gagnvart lögreglunni. Það voru málaferli í gangi milli Nordica og Baugs sem laut að einkaréttarlegu uppgjöri. Því máli lauk með sátt fyrir ári síðan og liður í henni var samkomulag þess efnis að málsaðilar væru bundnir trúnaði um efni sáttarinnar. Sú sátt snertir hins vegar á engan hátt möguleika hans eða heimild til að reifa mál sín fyrir lögreglu eða öðrum yfirvöldum." Jón Gerald kom gagngert til landsins í skýrslutökur vegna Baugsrannsóknarinnar en hann er búsettur í Flórída. Hann er framkvæmdastjóri Nordica á Flórída, sem átti í viðskiptum við Baug en kærði fyrirtækið á sínum tíma til lögreglu þar sem hann taldi Baug skulda sér ógreidda reikninga.
Fréttir Innlent Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Selenskí mun funda með Trump Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði Sjá meira