Skar hársbreidd frá slagæð 27. júlí 2004 00:01
Lögregla telur það mildi að ekki fór verr en raunin varð þegar leigubílstjóri var skorinn sextán sentímetra löngum skurði á háls með hnífi í vesturborg Reykjavíkur í nótt. Bílstjóranum blæddi talsvert eftir árásina en aðeins munaði hársbreidd að hnífurinn, eða lagvopnið, skæri sundur slagæð upp til höfuðsins. Fjórir menn eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins. Þeir voru farþegar í bílnum en um klukkan hálf tvö nam bílstjórinn staðar að ósk þeirra. Var þá lagt til hans með hnífi en honum tókst að tilkynna árásina og forða sér út úr bílnum. Lögreglumenn sem voru skammt frá voru þegar sendir á vettvang og kallað var á allt tiltækt lið. Bílstjórinn var þegar fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans en lögreglumenn náðu öllum fjórum mönnunum á flótta og handtók þá. Tildrög eru óljós þar sem rannsókn er á frumstigi og er meðal annars óljóst hvort mennirnir stóðu sameiginlega að árásinni. Þó er ljóst að aðeins einn þeirra veitti bílstjóranum áverkann. Mennirnir, sem allir hafa gerst brotlegir við lög áður, voru drukknir og í annarlegu ástandi. Þeir verða ekki yfirheyrðir fyrr en þeir hafa sofið úr sér vímuna. Þá er árásarvopnið ófundið en allt bendir til þess að það hafi verið beittur hnífur. Bílstjórinn er enn á sjúkrahúsi en á batavegi og er sagður munu ná sér að fullu
Fréttir Innlent Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fleiri fréttir Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Sjá meira