Frumvarpið ekki afturkallað 11. júlí 2004 00:01
Bjarni Benediktsson formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að ekki hafi komið til tals að afturkalla fjölmiðlafrumvarpið nýja sem er til umfjöllunar í nefndinni. Hann segir að unnið sé af fullum heilindum í málinu. Bjarni Benediktsson segist ekki telja að það beri að afturkalla málið þrátt fyrir andstöðu í þjóðfélaginu. Hann segir að svipuð andstaða hafi verið í vor í könnunum en þegar hefði verið athugað hve margir hefðu kynnt sér málið efnislega hefði það verið mjög lágt hlutfall þeirra sem afstöðu tóku. Stjórnarflokkarnir tapa fylgi og Bjarni Benediktsson segist ekki neita því að þetta sé umdeilt mál. Það vanti þó tilfinnanlega efnislega umræðu um þær breytingar sem hafi orðið á frumvarpinu. Hann bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn sé nærri kjörfylgi þrátt fyrir allt og Framsóknarflokkurinn eigi samkvæmt reynslunni eftir að sækja í sig veðrið. Hann segir nefndina vera í miðjum klíðum að vinna að málinu. Kallað hafi verið eftir ólíkum sjónarmiðum og komið hafi fram mismunandi lögfræðiálit og vinnunni sé ekki lokið. Ekki sé hægt að segja nú hvaða stefnu málið tekur á endanum. Hann telur þó vel tækt að fella fjölmiðlalögin brott eins og hefur verið gert og jafnframt að setja ný lög. Enda telur hann óeðlilegt að Alþingi geti einungis fellt lög brott en ekki sett ný í staðin. Hann telur alls ekki að verið sé að ganga fram hjá þeirri staðreynd að forsetinn sé hluti af löggjafarvaldinu, enda fari þessi lög eins og öll önnur fyrir forseta til staðfestingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira