Lagaleg staða þolenda er óverjandi 17. nóvember 2004 00:01
Lagaleg staða þolenda heimilisofbeldis er óverjandi, ekki síst í ljósi þess að í skýrslu fjögurra ráðuneyta frá 1997 um nauðsynlegar breytingar á löggjöf til að sporna við slíku ofbeldi, var kveðið mjög afgerandi á um að fara þyrfti í sérstakar aðgerðir. Síðan hefur sáralítið gerst. Þetta sagði Margrét Frímannsdóttir alþingismaður um það lagaumhverfi sem þolendur heimilisofbeldis búa við. Að sögn Margrétar Tómasdóttur, sviðsstjóra á hjúkrunar- og bráðasviði Landspítala - háskólasjúkrahúss, þar sem móttaka fyrir þolendur slíks ofbeldis er starfrækt í tilraunaskyni, eru skýrt skilgreind 140 heimilisofbeldismál á ári. Sum koma fyrir oftar en einu sinni. Ef börn eru í dæminu er það tilkynnt til barnaverndaryfirvalda. Forráðamenn móttökunnar hafa gengið á fund Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra og beðið hann að huga að lagaumhverfi þessa hóps. "Þetta eru að langstærstum hluta konur," sagði Margrét Tómasdóttir. "Þegar við segjum við þær að þær fái kannski þessa aðstoð og kannski hina, þá fyllast þær óöryggi og við missum þær út aftur án þess að geta gert nokkuð. Til dæmis er einungis heimild fyrir því að þær fái réttargæslumann ef lögregla metur það svo. Á neyðarmóttöku vegna nauðgana er það hins vegar hluti af rétti þeirra." Margrét Frímannsdóttir sagði að þegar til hefði staðið að stofna umrædda neyðarmóttöku hefði það verið í hugum flestra með sama fyrirkomulagi og neyðarmóttaka vegna nauðgana. Tilgangurinn hefði verið tvíþættur, að opna umræðuna og hafa tiltækan stað sem þeir einstaklingar er hefðu sætt heimilisofbeldi gætu leitað til og fengið aðhlynningu, sálgæslu og lögfræðiaðstoð eftir þörfum. "Þessari umræðu hefur ekki verið fylgt eftir af stjórnvöldum, þannig að þetta er hvorki fugl né fiskur. Það vantar fjármagn til verkefnisins. Þegar LSH er gert að skera niður þá segir það sig sjálft að spítalinn hefur ekki fjármagn til að fara út í nýja starfsemi. Stjórnvöld hafa einfaldlega ekki fylgt skýrslunni eftir, eins afdráttarlaus og hún þó er."
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira