Kærir auglýsingar 17. nóvember 2004 00:01
Jóhannes Valdimarsson rekstrarfræðingur hefur kært auglýsingar vegna húsnæðislána bankanna til Samkeppnisstofnunar þar sem hann segir skilyrði þeirra brjóta gegn ákvæðum samkeppnislaga. Hann segir bankana blekkja fólk vísvitandi með villandi upplýsingum án þess að Neytendasamtökin eða aðrir láti sig málið varða. Jóhannes Valdimarsson segist hafa farið í viðskiptabanka sinn til að sækja um endurfjármögnun lána í samræmi við auglýsingar um ódýr húsnæðislán. Hann segir að þegar kom að því að skrifa undir lánið stæði að það bæri 5,1 prósent vexti en ekki 4,2. Hann segist hafa gert athugasemd og þá hafi sér verið sagt að hann fengi þetta keypt á 4,2% vöxtum, en í skuldabréfinu væri ákvæði sem segði að bankanum væri heimilt að hækka vextina upp í 5,1% vexti ef viðskiptum við bankann yrði hætt. Jóhannes segist hafa orðið reiður við enda hafi aldrei verið minnst á þetta fyrr en kom að því að skrifa undir fasteignaveðbréfið. Á það sé ekki minnst í auglýsingum um lánin. Í fasteignaveðbréfinu standi svo að skluldari sem uppfylli skilyrði bankans fái 0,9 prósenta afslátt af vöxtunum en þar komi þó ekki fram hver þau skilyrði eru. Bankanum sé því í sjálfsvald sett að breyta þessum þeim að vild. Þegar eignin sé seld þurfi viðkomandi eigandi að greiða upp lánið ef kaupandinn kýs ekki að eiga viðskipti við við viðkomandi banka eða sæta öðrum skilyrðum. Annars hækki lánið upp í 5,1%, sem séu hærri vextir en Íbúðalánasjóður bjóði í dag Bankarnir taki 2% uppgreiðslugjald sem þeim sé í sjálfsavald sett að hækka hvenær sem er. Það séu í dag um 400 þúsund krónur af tuttugu milljónum sem leggist aukalega á seljanda íbúðar. Jóhannes segir að ákvæðið um uppgreiðslugjald, sé íþyngjandi í framtíðarviðskiptum með fasteignir.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira