Innlent

Flugvél hlekktist á í flugtaki

Lítilli eins hreyfils flugvél hlekktist á í flugtaki á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ um klukkan hálf þrjú í dag. Um borð voru flugmaður og farþegi og sakaði þá ekki. Flugvélin er af Citabria gerð. Samkvæmt flugáætlun ætlaði flugmaðurinn að fljúga frá Tungubakkaflugvelli kl. 14:37 og lenda þar aftur klukkustund síðar. Flugmaðurinn lét flugturninn í Reykjavík vita af óhappinu kl. 14:56. Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF) var þegar tilkynnt um málið og fer hún með rannsókn óhappsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×