Innlent

Líðan mannsins óbreytt

Líðan mannsins, sem ekið var á í Ártúnsbrekkunni í fyrrinótt, er óbreytt. Hann slasaðist alvarlega og er enn í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Komið var að honum meðvitundarlitlum á götunni, en ökumaður bifreiðarinnar sem ók á hann, hafði stungið af. Lögregla fann bifreiðina skömmu síðar og handtók mann, sem er grunaður um að hafa ekið henni. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×