Innlent

Vinnuslys í Hafnarfirði

Fimmtán ára piltur liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans eftir vinnuslys í Hafnarfirði í gær. Pilturinn var við vinnu í nýbyggingu á Völlunum er hann féll niður af byggingarpalli, um 5 og hálfan metra. Hann slasaðist á höfði og í brjóstholi og var fluttur á gjörgæsludeild, þar sem hann liggur enn. Líðan hans hefur verið óbreytt, en hann er þó ekki í öndunarvél.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×