Innlent

Fjárfesting mest í frjálsræði

Fjárfesting er mest í þeim löndum þar sem mest frjálsræði er í efnahagsmálum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fraser stofnunarinnar í Kanada, en íslenski hluti skýrslunnar er unninn hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Þar segir að aukið atvinnufrelsi leiði af sér aukna fjárfestingu, aukinn hagvöxt og í framhaldi af því, bætt lífskjör. Mest frjálsræði í efnahagsmálum er í Hong Kong. Þar er einnig mest fjárfesting á hvern vinnandi mann, eða tæplega 11 þúsund dollarar, 12 sinnum meiri en í þeim ríkjum sem búa við minnst frelsi í efnahagsmálum. Næstu lönd á listanum eru Singapore, og síðan Nýja Sjáland, Sviss, Bretland, og Bandaríkin. Ísland er í 14. sæti listans. Af Norðurlöndunum er aðeins Finnland ofar á lista yfir frjálsræði í efnahagsmálum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×