Innlent

Ranglega dæmd fyrir kynferðisbrot

Áfrýjunardómstóll í Færeyjum þarf að taka upp mál færeyskra hjóna sem dæmd voru í fangelsi fyrir sifjaspell. Börnin, sem hafa búið hér á landi undanfarin ár, hafa viðurkennt að hafa haft hjónin fyrir rangri sök. Stjúpmóðirin býr einnig hér á landi hún hefur verið ákærð fyrir að beita börnin ofbeldi. Mál barnanna vakti fyrst athygli þegar þau komu hingað til lands með föður sínum og stjúpmóður árið 2000 og bjó fjölskyldan þá í tjöldum í Keflavík. Félagsmálayfirvöld töldu ástæðu til að skakka leikinn og komu þeim í fóstur og síðar voru faðirinn og stjúpmóðir svift forræði yfir þeim. Skömmu áður höfðu börnin, ein stúlka og tveir drengir, sakað móður sína og eiginmann hennar um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi um níu ára skeið. Hjónin voru dæmd í tveggja ára fangelsi í héraði, og dómarnir staðfestir í hæstarétti, þó dómur yfir manninum hafi verið styttur. Þau hafa fyrir löngu tekið út sína refsingu. Börnin hafa allan þennan tíma búið á Íslandi en þegar dóttirin, sem er þeirra elst, varð 18 ára gaf hún sig fram af fúsum og frjálsum vilja við lögregluna í Reykjavík og játaði að hafa haft móður sína og stjúpföður að rangri sök. Linda Helstelberg, sérstakur saksóknari í málinu í Þórshöfn, sagði í samtali við fréttastofu að dóttirin hefði ekki getað hugsað sér að lifa lengur með það á herðunum að hafa logið upp á móður sína. Í kjölfarið breyttu drengirnir einnig framburði sínum. Þau sögðu að stjúpmóðir þeirra hefði þvingað þau til að ljúga til um kynferðislegt ofbeldi móðurinnar og eiginmanns hennar. Danskur áfrýjunardómstóll hefur nú úrskurðað að málið skuli tekið upp að nýju fyrir Eystri- Landsrétti. Tvö barnanna voru orðin 15 ára þegar þau lugu fyrir dómi og eiga því yfir höfði sér ákæru fyrir rangar sakargiftir. Stjúpmóðirin, sem einnig býr hér á landi, hefur þegar verið ákærð í Færeyjum, og ekki aðeins fyrir að hafa þvingað þau til að ljúga upp á móður sína og stjúpföður, heldur einnig fyrir líkamlegt og andlegt ofbeldi á börnunum þremur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×