Innlent

Kostnaður við hvern nema eykst

Gert er ráð fyrir að kostnaður á hvern framhaldskólanema í dagskóla verði 563 þúsund í ár. Hann hækkar um 48 þúsund frá því í fyrra. Frá árinu 2000 hefur kostnaðurinn hækkað um 198 þúsund krónur á hvern nemenda, eða um tæplega 43 prósent, samkvæmt tölum frá menntamálaráðuneytinu. Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, segir vaxandi kostnað í opinberum rekstri mikið vandamál sem við þurfi að stríða og sporna gegn. "Við trúðum því statt og stöðugt í endaðan nóvember þegar við hækkuðum fjárveitingar til framhaldskólanna um 600 milljónir að það væri sannarlega nóg. Okkur er tjáð að núna séu umsóknirnar fleiri og meiri en nokkru sinni fyrr og hærra hlutfall árgangsins en nokkurntímann fyrr. Við höfum enga stöðu til að sanna það en við vitum að fjármálaráðherra er að skoða þetta núna." Steingrímur Sigurgeirsson aðstoðarmaður menntamálaráðherra segir fjárúthlutun til framhaldskólanna fara eftir reiknilíkani og tveir þættir ráði hækkuninni. "Annars vegar verðlagshækkanir á þessum þáttum sem reiknilíkanið tekur til og síðan þessi hækkun á framlögum til verknáms." Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður framhaldskólanna, segir ljóst að nýir kostnaðarliðir hafi myndast á síðust árum. "Við erum með svokallað framhaldskólanet, þar sem allir framhaldskólarnir eru tengdir saman. Þar er mikill kostnaður sem leggst á rekstur skólanna. Eins nemendaforritið, Inna, sem allt bókhaldið í kringum nemendurna er í." Ingibjörg nefnir einnig kostnað við tölvukerfin og umsjónamenn þeirra. Hún segir einnig að launahækkanir hafi verið þrjú prósent og að vísitalan hafi hækkað. "En ég get ekki sagt hvort þetta skýri mismuninn milli áranna."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×