Sýknaður vegna tafa á málsmeðferð 29. júní 2004 00:01
Keflvíkingur var í dag sýknaður af ákæru um tryggingasvik vegna þess að ámælisverður dráttur hafði orðið á málsmeðferðinni. Vitni voru dáin og málsskjöl svo máð af elli að ekki var hægt að lesa þau. Enginn sakborningur á að þurfa þola að meðferð máls hans dragist úr hömlu. Í slíkum tilvikum eru þeir sýknaðir, þótt þeir séu í raun sekir um þau brot sem þeir eru sakaðir um. Keflvíkingur, sem var ákærður fyrir að hafa ítrekað og með skipulegum hætti svikið fé úr tryggingafélögunum á árabilinu 1989 til 1991, var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af þeirri ástæðu. Gildir einu þótt dómarinn komist að þeirri niðurstöðu að sök sé sönnuð í fimm tilvikum af níu. Málið hafði legið óhreyft hjá lögreglunni í 7 ár þótt það hafi verið álitið nógu alvarlegt í byrjun til þess að hneppa manninn í gæsluvarðhald. Málið var ekki þingfest fyrr en árið 1999 og velktist svo í dómskerfinu þangað til í dag. Ekki var skipulega tekið á því fyrr en í desember í fyrra og því lauk svo með hreinni sýknu sem fyrr segir. Í dómnum segir orðrétt: „Allur málatilbúnaður ákæruvaldsins er mjög ruglingslegur og mjög erfitt og oft útilokað að sjá tengsl einstakra skjala við einstaka ákæruliði.“ Dómarinn segir að hluti skjala sé nánast ólæsilegur enda höfðu skjölin máðst á þeim langa tíma sem leið frá því að rannsókn lögreglu hófst og dómur féll. Enn fremur séu vitni í málinu látin. Svo segir að drátturinn, bæði hjá lögreglu og dómstólum, sé andstæður meginreglu laga um meðferð opinberra mála, ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Dómarinn segir og undirstrikar að drátturinn sé „ámælisverður“. Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjórans, viðurkennir að þetta sé áfellisdómur yfir embættinu en einnig dómstólum. Rannsóknin hafi meðal annars tafist þar sem hluti tryggingasvikanna átti sér stað erlendis og beðið var of lengi eftir niðurstöðum að utan. Margir hafi komið að rannsókninni, sumir horfið til annarra starfa, embætti Rannsóknarlögreglu ríkisins lagt niður og þar fram eftir götunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira