Liháinn má koma aftur 29. júní 2004 00:01
Litháinn sem Hæstiréttur dæmdi að hefði ranglega verið vísað úr landi hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hann snýr aftur hingað til lands. Honum er það þó algerlega frjálst. Forstjóri Útlendingastofnunar er staðfastlega þeirrar skoðunar að rétt ákvörðun hafi verið tekin þegar manninum var vísað úr landi. Maðurinn sem um ræðir nauðgaði og myrti 27 ára gamla, þriggja barna móður í heimabæ sínum í Litháen árið 1995. Litháenskur dómstóll dæmdi manninn ósakhæfan, en hann greindist með ofsóknarkenndan geðklofa. Hann var vistaður á sjúkrahúsi í fjögur ár, hélt til Íslands eftir að hann var útskrifaður þaðan og fékk dvalarleyfi til ársins 2001. Útlendingaeftirlitið úrskurðaði að manninum skyldi vísað úr landi þegar þegar því bárust upplýsingar um bakgrunn hans. Dómsmálaráðuneytið staðfesti þann úrskurð. Hann byggðist á læknisfræðilegum gögnum frá árinu 1995. Þar segir að hann þurfi stöðugt eftirlit og lyfjagjöf. Útlendingaeftirlitð taldi ekki vogandi að bíða eftir úrskurði heilbrigðisyfivalda hér á landi um andlegt ástand mannins. Hæstiréttur taldi að slíkir annmarkar hefðu verið á meðferð málsins að ógilda skyldi brottvísunina. Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunar, segir dóminn vera skýra ábendingu um að stofnunin þurfi að breyta sínum vinnubrögðum. Komi upp viðlíka mál sé ljóst að fram þurfi að fara ítarlegri og nákvæmari rannsókn en fram fór í máli Litháans. Georg segir Hæstarétt eiga lokaorðið en samt segist hann vera þeirrar skoðunar að hafi ekki verið skynsamlegt, vogandi eða rétt að bregðast við með öðrum hætti en þarna var gert. Georg segir dómsmálaráðuneytið og Héraðsdóm deila þeirri skoðun með sér. Frá því manninum var vísað úr landi hefur hann ekki getað ferðast um Schengen-svæðið og gæti átt skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu vegna takmörkunar á ferðafrelsi. Hann er staddur í Litháen um þessar mundir og segir lögfræðingur hans að honum líði vel. Hann sé ánægður með að hafa unnið fullnaðarsigur í málinu. Litháinn hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hann höfði mál á hendur íslenska ríkinu, né heldur hvort hann muni flytja hingað til lands á nýjan leik. Óski hann eftir því fær hann það skýrt og klárt. Georg segir manninn ekki einu sinni þurfa að leggja inn umsókn heldur þurfi hann aðeins að óska eftir framlengingu á því leyfi sem hann hafði því aðgerðir Útlendingastofnunar og dómsmálaráðuneytis séu felldar úr gildi.
Fréttir Innlent Mest lesið Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Fleiri fréttir Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað Sjá meira