Ítrekaðar athugasemdir við skipið 29. júní 2004 00:01
Tyrkneska skipið sem losnaði af strandstað út af Straumsvík í gær fer í sérstaka skoðun hér á landi samkvæmt svokölluðu Parísarsamkomulagi sem tekur til öryggis skipa. Menn frá Siglingamálastofnun munu verja næstu dögum í að kanna ástand og haffærni skipsins en undanfarin misseri hafa ítrekaðar athugasemdir verið gerðar vegna þess í höfnum víðs vegar um veröldina. Samkvæmt skjölum um Kiran Pacific hafa verið gerðar fjölmargar athugasemdir við ýmsa hluti um borð við skoðanir í Belgíu, Rússlandi, Bretlandi og Ítalíu síðustu þrjú ár. Þegar skipið og skipskjöl voru skoðuð í London í fyrra fannst t.a.m. ekkert um það hver ætti skipið nema að það er skráð í Grikklandi og var smíðað árið 1986. Í tvígang hefur það verið stöðvað í erlendum höfnum síðustu tvö ár fyrir að framfylgja ekki Parísarsamkomulaginu sem nær meðal annars til ýmissa öryggisatriða um borð í skipum. Tuttugu Evrópuríki hafa undirritað samkomulagið, þ.á m. Ísland. Að sögn Þórs Kristjánssonar, deildarstjóra hjá Siglingamálastofnun, hefur enn ekkert komið í ljós sem bendir til þess að skipið verði nú stöðvað í þriðja sinn; ástandið sé alls ekki „svo slæmt um borð“, eins og hann orðaði það. Verði skipið stöðvað hér á landi fer það beina leið á bannlista. Áhöfnin, 21 maður, er enn um borð og í nógu er að snúast við að afferma skipið sem flutti 45 þúsund tonn af súráli frá Bandaríkjunum til Straumsvíkur. Þegar því er lokið kemur í ljós hvort vatn hefur komist í lestar skipsins. Kafarar reyna nú að gera bráðabirgðalagfæringar á þeim skemmdum sem urðu á botntönkum þess við strandið. Ekki er unnt að taka það í slipp hér á landi vegna stærðar en minnstu munaði að það kæmist ekki inn í höfnina í Straumsvík. Vegna skemmdanna risti stefni þess tveimur metrum meira en skuturinn svo það rétt skreið inn.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira