Hákon Eydal játar morðið á Sri 28. júlí 2004 00:01
Hákon Eydal, fyrrverandi sambýlismaður Sri Ramawati, hefur viðurkennt að hafa banað henni og varpað líkinu af í sjóinn við Hofsvík á Kjalarnesi. Fjölskylda hins grunaða á hús á svæðinu. Fyrrverandi sambýlismaður Sri Ramawati, Hákon Eydal, viðurkenndi í yfirheyrslum hjá lögreglu á Litla-Hrauni nú síðdegis að hafa banað Sri í íbúð sinni í Stórholti sunnudaginn 4. júlí síðastliðinn. Í gær urðu þáttaskil í rannsókn málsins þegar banamaður hennar viðurkenndi að hafa losað sig við lík hennar við Presthúsatanga við Hofsvík á Kjalarnesi. Hann kom þangað í gærkvöldi í fylgd lögreglu og vísaði henni á staðinn. 130 björgunarsveitarmenn leituðu Sri í í gærkvöldi. Leitað var meðfram allri strandlengju Kjalarness inn að botni Kollafjarðar bæði af sjó og landi, en án árangurs. Hinn grunaði var færður til yfirheyrslu í gærkvöldi eftir að hafa verið uppi á Kjalarnesi, hann viðurkenndi ekki þá að eiga þátt í dauða hennar en að sögn Ómars Smára Ármannssonar aðstoðar yfirlögregluþjóns viðurkenndi hann að vera valdur að dauða hennar við yfirheyrslum síðdegis. Leitin að Sri heldur áfram af fullum krafti. Um klukkan tvö í dag komu kafarar lögreglunnar upp í Hofsvík og kafarar Landsbjargar bættust svo í hópinn á fjórða tímanum. Aðstæður til leitar voru mjög erfiðar, enda dimmt yfir og hvasst og lítið skyggni. Þá segja kafararnir að á þessu svæði sé gríðarmikill sjávargróður. Undir kvöld fóru svo um 130 björgunarsveitarmenn til leitar. Þeir leita eftir strandlengjunni frá Hvalfirði inn að Geldinganesi við Grafarvog. Þá er einnig ætlunin að fara með leitarflokka í eyjar og sker í Kollafirði. Auk mannanna verða 2 björgunarskip og 6 bátar notuð við leitina. Vanir björgunarsveitarmenn sem fréttastofa hefur rætt við í dag segja strauma á svæðinu með þeim hætti að mestar líkur séu á að lík sem sett sé í sjóinn á þessum slóðum geti rekið í átt að og alla leið vestur á Snæfellsnes. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við fréttastofu að grunur lögreglu hefði mjög fljótlega beinst að Hofsvík. Þar hefði í tvígang verið leitað í upphafi rannsóknar út frá ákveðnum vísbendingum sem lögregla hafði. Staðreynd er að fjölskylda hins grunaða á gamalt hús þarna skammt frá, en Ómar Smári vill ekki staðfesta að það sé ástæða þess að grunur beindist fljótt að þessu tiltekna svæði.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira