Innlent

Ung landnámskona hlaðin skarti

Eigandi skartgripanna sem fundust norður af Vestdalsheiði fyrir viku hefur líklega verið ung kona, sem uppi var á fyrri hluta tíundu aldar. Þetta er mat fornleifafræðinga sem í gær fundu fleiri skartgripi og mannabein á vettvangi. Eins og kunnugt er fundust fornir skartgripir í klettum utan við Vestdalsvatn í síðustu viku. Nú telja fornleifafræðingar á staðnum líklegt að eigandi skartgripanna hafi verið ung kona, sem skarti hlaðin sem leitaði sér skjóls í gjótu norður af Vestdalsheiði og varð þar úti. Meðal gripanna sem fundust var brjóstnæla og þar sem þær koma í pörum þótti vænlegt að leita að hinni nælunni. Þegar leitarmenn voru orðnir vondaufir um að leitin bæri árangur römbuðu þeir á agnarsmáa perlu, sem leiddi þá að fleiru en nælunni sem upphaflega stóð til að finna. Nokkrar mismunandi nælur og 50-60 perlur hafa fundist og líklegt að fleiri munu finnast næstu daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×