Fæstar kærur enda með dómi 28. júlí 2004 00:01
Af sjö til tíu kærum sem berast lögreglu á ári hverju vegna áfengisauglýsinga enda fæst mál með dómi. Fyrir þremur árum lagði vinnuhópur Ríkislögreglustjóra til endurskoðun laga, þar sem ekki væri hægt að beita þeim gegn áfengisauglýsingum. Lögin hafa ekkert breyst. Forstjóri ÁTVR, Höskuldur Jónsson, hefur sagt í fréttum Stöðvar 2 að áfengislög þyrftu að vera skýrari og tekur hann þannig undir með áfengisheildsölum. Í vínbúðum þessa dagana eru spjöld, útstillingar, bæklingar og fleira sem er í takt við blaðaauglýsingar ÁTVR. Verður ekki betur séð en að ríkið brjóti þar með tuttugstu grein áfengislaga, þar sem talað er um spjöld, útstillingar og fleira. Ingimundur Einarsson, varalögreglustjóri í Reykjavík, segir að á bilinu sjö til tíu kærur berist embættinu á ári, vegna áfengisauglýsinga. Hann segir fá mál fara alla leið í dómssal en þau sem það geri endi yfirleitt með sektum. Nýjasti dómurinn í svona máli er frá fimmta júlí síðastliðnum. Þá voru ákærðir ábyrgðarmaður og útgefandi rits sem gefið var út í tengslum við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves fyrir tæpum tveimur árum. Í blaðinu var birt bjórauglýsing. Mennirnir tveir voru dæmdir til að greiða hundrað þúsund króna sekt hvor, ella sitja inni í tuttugu daga. Dómari vísaði til dóms frá 1999 þegar framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar var dæmdur til sektargreiðslu fyrir að birta bjórauglýsingar á flettiskilti, í dagblaði og í útvarpi. Með tilliti til þessa dóms og annarra, þar sem menn voru meðal annars dæmdir fyrir að aka um á bílum merktum áfengistegundum, lagði vinnuhópur Ríkislögreglustjóra til, fyrir þremur árum, að tuttugasta grein áfengislaga yrði gerð skýrari. Einnig þyrfti að gera það refsivert fyrir eigenda blaðs eða ljósvakamiðils að birta áfengisauglýsingar. Áfengislög hafa verið óbreyt í sjö ár og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, vísar í þessu sambandi í málflutning sinn á Alþingi þar sem hann ítrekar að lögregla og lýðheilsustöð framfylgji banni við áfengislögum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Innlent Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Innlent Fleiri fréttir Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Sjá meira