Innlent

Hafna þúsund nemendum

Að óbreyttu mun Kennaraháskóli Íslands neyðast til að hafna samanlagt tæplega eitt þúsund umsækjendum á næsta skólaári. Þetta kemur fram í frétt frá skólanum. Á þessu vori bárust nær 1.900 umsóknir um nám við Kennaraháskólann. Því miður leyfir fjárhagsrammi hans ekki að nema tæplega helmingi þessa hóps verði boðin skólavist, að sögn forráðamanna hans. Lokið er úrvinnslu umsókna fyrir næsta skólaár. Alls bárust 1.500 umsóknir um nám í grunndeild og hefur 685 verið boðið að hefja nám. Í grunndeild sækja flestir um grunnskólabraut eða 631. Af þeim fá 280 inngöngu. Um nám í framhaldsdeild sóttu 334 og var 218 umsækjendum boðið að hefja nám. Nemendur við Kennaraháskóla Íslands eru nú um 2.400 og hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Harma forráðamenn skólans að þurfa að hafna fjölmörgum hæfum umsækjendum og raun ber vitni, en telja á hinn bóginn afar ánægjulegt hversu margir sýna náminu við hann áhuga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×