Nemar komast í framhaldsskóla 22. júní 2004 00:01
Alls hafa 6.606 nemendur sótt um innritun í framhaldskóla á næstu haustönn sem eru um 700 fleiri en gert er ráð fyrir í fjárlögum. Aðstoðarmaður menntamálaráðherra segir í fjarveru hans að allir sem komi beint úr grunnskólum landsins fái að stunda nám í framhaldskóla óski þeir þess. Um 400 milljónir þurfi til að brúa bilið á ársgrundvelli og niðurstaða funda ráðuneyta sé að vænta í vikunni. Formaður félags íslenskra framhaldskóla segir að sjá hefði mátt vandann fyrir. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir að aukafjárveiting verði að koma til svo nýnemarnir fái allir skólapláss að hausti. "Fjármála- og menntamálaráðuneytin eru að ræða þessi mál og þetta verður leyst," segir Steingrímur. "Það er stefnt að því að tryggja að allir þeir sem komi upp úr grunnskólunum fái vist í framhaldskóla. Það hefur alltaf staðið til." Steingrímur segir að ekki sé hægt að lofa hverjum og einum nemanda um skólavist sem gert hafi hlé á námi í framhaldskólum en vilji halda því áfram. Það verði þó reynt. Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður félags íslenskra framhaldskóla, segir stöðuna óþægilega. "Fyrst og fremst er þetta hræðilega óþægileg staða fyrir krakkana og foreldra þeirra að eiga ekki trygga skólavist og kannski ekki mikla von um hana heldur," segir Ingibjörg og bætir við: "Það verður mjög erfið staða fyrir þá sem vilja taka upp þráðinn aftur og ég veit ekki hvernig það fer." Ingibjörg segir málið snúast um peninga, en fullur vilji sé til að leysa það. "Hingað til höfum við alltaf talað þannig að allir ættu að komast í framhaldskóla." Ingibjörg segir að nú sé í fyrsta sinn rætt um að það sé ekki sjálfsagt: "Á að taka upp skólagjöld í Háskólanum eða ekki? Á að taka upp skólagjöld í framhaldskólanum eða ekki? Þetta er nýtt hjá okkur. Við eigum að veita okkur, allri þjóðinni, þann munað að það sé sjálfsagður kostur allra að mennta sig. Við eigum að borga fyrir það af skatttekjum því það skilar sér í aukinni hagsæld."
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira