Svartsýnisspá um stjórnarskrá 22. júní 2004 00:01
Ný stjórnarskrá Evrópusambandsins kemur endanlega í veg fyrir að Ísland og Noregur gangi nokkurn tímann í sambandið, segir í umfjöllun norska Fiskeríblaðsins um nýju stjórnarskrána. Íslenska sérfræðinga í Evrópumálum greinir á um hvort hér sé einungis um að ræða svartsýnisspá. Í stjórnarskrá Evrópusambandsins er kveðið á um að fiskveiðiauðlindir séu sameiginlegar auðlindir sambandsríkja. Fiskeribladet segir að verði stjórnarskráin, sem leiðtogafundurinn samþykkti um síðustu helgi, samþykkt í öllum 25 aðildarríkjunum verði forræði sjávarútvegsmála og fiskveiðistefnu miðstýrt frá Brussel og aðildarlöndin missi þann rétt að stjórna fiskveiðum í sinni lögsögu. Blaðið segir að því hafi verulega dregið úr möguleikunum á því að Norðmenn og Íslendingar sæki um aðild að sambandinu. Haft er eftir talsmanni skoska þjóðernisflokksins Angus Robertsson, að ef stjórnarskráin verði samþykkt, þá séu líkurnar á því að Ísland og Noregur gangi inn í sambandið álíka miklar og að snjóbolti bráðni ekki í Helvíti. Þetta er langsvartsýnasta túlkunin á ákvæði stjórnarskrárinnar að mati Einars Páls Tamimi, forstöðumanns Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík. Hann bendir á að engar útskýringar sé að finna í stjórnarskránni á því hvernig staðið verður að því að úthluta veiðiréttindum. Til dæmis hvort byggt verði á veiðihefðum eða einhverju öðru. Hans mat er að blaðið dragi þarna miklar ályktar á afar hæpnum forsendum. Framkvæmdastjóri Heimssýnar, Birgir Tjörvi Pétursson, sem barist hefur gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu er þó á öðru máli. Hann segir að þótt ekki komi fram hvernig veiðiréttindum verði úthlutað, þá sé ljós að full yfirráð yfir sjávarútvegsmálum verði hjá Evrópusambandinu, en ekki aðildarríkjum. Allt annað sé óskhyggja. Hann tekur undir með Fiskeribladet og segir nú enn ólíklegra að Íslendingar sæki um aðild að sambandinu, nema stjórnvöld ákveði að sjávarútvegurinn skipti ekki máli og vilji láta Evrópusambandið sjá alfarið um þann málaflokk.
Fréttir Innlent Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Sjá meira