Meðferð Palestínumannanna gagnrýnd 22. júní 2004 00:01
Tveimur af þremur Palestínumönnum, sem handteknir voru með fölsuð vegabréf fyrir skömmu, var í dag vísað úr landi, og sá þriðji fer á morgun. Meðferð mannanna er gagnrýnd og segja lögmenn þeirra málsmeðferð brenglaða. Palestínumennirnir komu til Íslands með Norrænu í byrjun maí og framvísuðu fölsuðum eða stolnum vegabréfum við komuna til landsins. Þeir voru handteknir og óskuðu eftir hæli, en hælisbeiðni þeirra var vísað frá, þar sem grunur lék á að þeir tengdust alþjóðlegri glæpastarfsemi. Þeir voru úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald, sem rann út síðastliðinn miðvikudag, en voru handteknir aftur og úrskurðaðir í varðhald þar til þeim verður vísað úr landi. Strangt til tekið er eðlilegt að hælisleitendum sé vísað til þess Schengen-ríkis, þar sem þeir sóttu fyrst um hæli, í þessu tilviki Noregs. Verjendur mannanna í lögreglurannsókninni og talsmaður þeirra í brottvísunarmálinu gera alvarlegar athugasemdir við málsmeðferðina, sem þeir telja ekki lokið. Annars vegar var gæsluvarðhaldsúrskurðurinn kærður til Hæstaréttar, sem hefur ekki enn tekið afstöðu til málsins. Hins vegar var brottvísunin kærð til dómsmálaráðuneytisins, sem hefur ekki heldur kveðið upp úr um málið. Niðurstöður þessara æðri stjórnvalda skipta nú engu máli, þar sem tveimur mannanna var vísað úr landi í dag og sá síðasti hverfur af landi brott á morgun. Lögmennirnir telja þetta óeðlilegt, í fyrsta lagi hafi hvorki Hæstiréttur né dómsmálaráðuneytið fengið málsgögn í hendur fyrr en í gær, og annars vegar hefði verið eðlilegt að bíða úrskurðar, áður en mennirnir voru sendir á brott.
Fréttir Innlent Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Sjá meira