Þýskur áróðursruslpóstur 22. júní 2004 00:01
Þýskur pólitískur ruslpóstur hefur undanfarna daga hrannast upp í pósthólfum tölvunotenda um allan heim. Talið er að öfgahópur hafi fengið tölvuþrjóta í lið með sér til að geta dreift áróðri sínum um netið. Innihald póstsins er hægrisinnaður áróður, yfirleitt á þýsku, þar sem því er m.a. haldið fram að innflytjendur eigi sök á öllum helstu vandamálum þýsks samfélags. Líklegt er talið að hópurinn sem stendur á bak við áróðurinn hafi fengið tölvuþrjóta í lið með sér. Póstinum er dreift með því að búnar eru til bakdyr að þeim tölvum sem næst til. Tölvuþrjótarnir nýta síðan bakdyrnar til að senda út skilaboð í ætt við þau sem hér um ræðir í milljónum eintaka að eigendum tölvanna óafvitandi. Friðrik Skúlason, sérfræðingur í veiruvörnum, segir ekki rétt að um veiru sé að ræða eins og fram hafi komið í fjölmiðlum, þetta sé einfaldlega ruslpóstur sem er leiðinlegur en skaði ekki tölvur fólks. Hann segir að ólíkt því sem eigi við um tölvuvírusa þurfi fólk ekki að hafa áhyggjur Hann segir að ekki sé með góðu móti hægt að hindra póstinn í að komast til fólks nema það sé með aðstöðu til að láta sía hann. Ruslpóstur sem þessi er þó ekki það eina sem angrar tölvunotendur, því eins og fram hefur komið í fréttum færist það mjög í vöxt að alls kyns óþægindi geri vart við sig vegna notkunar Netsins til dreifingar tölvuveira, auglýsinga og svokallaðra njósnara. Friðrik hafði þetta að segja um lausn við slíkum vandamálum. Friðrik segir að engin ein töfralausn sé til við vandamálunum. Menn geti sett upp eldveggi og veiruvarnarkerfi. Í framtíðinni megi þó eiga von á nýrri tækni sem komi að mestu í veg fyrir vandræðin.
Fréttir Innlent Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Sjá meira