Innlent

Þjónusta í borginni endurskipulögð

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ráðast í gagngera endurskipulagningu á þjónustu borgarinnar með það fyrir augum að greiða leiðir borgarbúa að henni. Meðal annars verða stofnaðar fimm þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar. Kostnaður vegna breytinganna nemur um 200 milljónum króna. Einkennisorðin í endurskipulagningu á þjónustu borgarinnar eru þjónusta, hagkvæmni og samstarf og er tilgangurinn að tryggja að augljóst verði hvert borgarbúar eigi að sækja sér þjónustu. Meðal annars hafa verið lagðar fram tillögur í borgarráði að stofnun sérstakra þjónustumiðstöðva í hverfum borgarinnar. Þórólfur Árnason, borgarstjóri, segir að reynslan hafi sýnt að samþætting þjónustunnar skili aukinni hverfisvitund, ánægju á þjónustu Reykjavíkurborgar og að þar sé skattfé að nýtast betur. Hann segir að endurskipulagningin eigi eftir að hafa mikla þýðingu. Hann segir þetta færa þjónustuna nær íbúunum, þá verði stofnað eitt símanúmer þar sem hægt verður að fá allar upplýsingar um þjónustu borgarinnar auk þess sem vefurinn verður nýttur betur sem þjónustugátt. Kostnaðinn segir hann hlaupa á 200 milljónum króna en vonast sé til að hagræðing af endurskipulagningunni muni skila töluvert stærri fjárhæð með tímanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×